Þjálfari: Grímur Sævar Kristjánsson

Knattspyrnuæfingar fara fram í íþróttamiðstöðinni í Vík á veturna. Í maí þegar að sumaræfingarnar hefjast þá notum við bæði KSÍ gervigrasið og stóra grasvöllinn okkar.

Æfingareglur
Allir eiga að mæta stundvíslega á æfingar, vera tilbúin og klædd eftir veðri. Við leggjum áherslu á íþróttamannlega framkomu og við hvetjum alltaf liðsfélaga til dáða og erum kurteis og til fyrirmyndar innan sem utan vallar.

3-6. bekkur

Helstu þjálfunarmarkmið

1. leikreynsla og hvatning til frekari þátttöku
2. venjast áhöldum og tækjum sem unnið er með
3. fjölbreyttar æfingar með og án bolta þar sem samspil hreyfinga situr í fyrirrúmi

Helstu þjálfunaraðferðir

 1. leikir af ýmsum toga
 2. fj
ölbreyttar leikæfingar þar sem fáir eru í hverjum hópi
 3. hlaupa og liðaleikir með og án bolta
 4. fjölbreytt stöðvaþjálfun

7-10. bekkur

Helstu þjálfunarmarkmið

1. farið í undirstöðuatriði knattspyrnunnar  
2. farið dýpra í tækni og leikfræðilega útfærslu
3. þjálfun helstu þrekþátta auk samhæfingar og liðleika

Helstu þjálfunaraðferðir

1. leikrænar æfingar
2. keppnisleikir
3. hlaup- og ærslaleikir
4. þrekæfingar þar sem beitt er eigin líkamsþunga og þolgefandi æfingar í formi leikja og leikrænna æfinga

Æfingartafla  sumar 2009  
       
  Mán Þri Mið Fim
20:00-21:00